Íþróttaskinnur

 

Íþróttaskinnur

 

Allir sem stunda íþróttir þar sem hætta er á að fá högg eða lenda í samstuði ættu að nota íþróttaskinnur til að vernda tennurnar.  Ekki er mælt með tilbúnum skinnum úr apótekum eða íþróttaverslunum. Þær eru ódýrar en hafa marga ókosti. 

Þær passa illa, geta verið fyrirferðamiklar, geta valdið breytingum á biti ásamt því að hindra öndun og tal.

 

Besta ráðið er að láta sérsmíða skinnu sem passar nákvæmlega yfir tennur viðkomandi notanda. Slík skinna truflar lítið og er nægjanlega sterk til að verja tennur fyrir áverkum. Tannlæknar sérsmíða slíkar skinnur með því að taka mót af tönnunum. Sérsmíðaðar skinnur eru dýrari en borga sig margfalt með því að koma í veg fyrir tannskaða.

Greinar

Annað tengt efni