Hugleiðingar

Hugleiðingar um flúor

Flúortannkrem

Allir ættu að bursta tennur með flúortannkremi tvisvar á dag alveg frá því að fyrsta tönnin lítur dagsins ljós. Best er að nota bursta með mjúkum hárum. Eftirburstun ætti ekki að skola munninn með vatni heldur skyrpa og leyfa flúornum að vera í munninum lengur og vinna sitt gagn.

Ráðlagt magn flúortannkrems og styrkur flúors í tannkremi (ppmF) fer eftir aldri:

  • Börn að 3ja ára aldri: ¼ af nögl litla fingurs á barni, (1000-1350 ppm F)
  • Börn 3 til 5 ára: nöglinni á litla fingri, (1000 -1350 ppm F)
  • 6 ára og eldri: 1 cm, (1350 – 1500 ppm F)

Flúorskol

Gott er að skola munninn með flúorlausn (0,2%NaF), einu sinni i viku frá 6 ára aldri. Best er að skola alltaf sama vikudag til að auðvelda að muna eftir skolinu. 10 ml af flúorlausn er velt í munni í um það bil tvær mínútur og skyrpt á eftir.

Er flúor skaðlegur?

Flúor er eitt algengasta frumefni jarðar og finnst mjög víða í mismunandi samböndum við önnur efni. Flúor í því magni sem mælt er með í tannhirðu er skaðlaus og mjög gagnlegur og nauðsynlegur heilbrigði tanna. Eins og fjölmörg önnur efni sem eru í umhverfi okkar, getur flúor verið skaðlegur í miklu magni. Þetta á líka við um fjölmörg vítamín og steinefni sem nauðsynleg eru. Í miklu magni eru þau skaðleg. Flúor í því magni sem er mælt með í tannhirðu er skaðlaus en hins vegar mjög gagnlegur og nauðsynlegur heilbrigði tannanna. Flúor í of miklum mæli getur valdið útlitsbreytingum á yfirborði tannanna en þær eru ekki skaðlegar. Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér betur áhrif flúors á manninn hefur Vísindavefurinn skoðað þann þátt.

(af Heilsuveru og Vísindavef)

Greinar

Annað tengt efni